Fyrirtækið

AMG Aukaraf ehf, Dalbrekku 16, 200 Kópavogi, sími 585 000, netfang: aukaraf@aukaraf.is, áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
 

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts
um afhendingu vörunnar. AMG Aukaraf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá AMG Aukaraf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
 

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. Við sendum vörur með Íslandspósti en sendingarkostnaður er samkvæmt verðskrá Íslandspóst á hverjum tíma og greiðist af viðtakanda.
 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verðvörunnar þann dag sem henni er skilað. Varan er endurgreidd með millifærslu á bankareikning eða kreditkort viðskiptavinar. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.
 

Trúnaður (öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við
viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.